Í áfanganum fá nemendur fræðslu um þá möguleika sem bjóðast að loknu námi varðandi frekara nám, störf og áhugamál. Fjallað verður um mismunandi búsetuform, færslu heimilisbókhalds, áætlanir um matarinnkaup, skipulagningu heimilishalds og fleira tengt því. Nemandinn lærir að lesa og skilja launaseðla. Þá er fjallað um réttindi, ábyrgð og skyldur einstaklinga sem borgara og þátttakenda í lýðræðissamfélagi. Einnig verður fjallað um þátt stéttarfélaga og hlutverk þeirra í samfélaginu. Að auki undirbúa nemendur útskrift að vori, skipuleggja fjáröflun og sameiginlegt ferðalag. Áfanginn er tekin á lokaári.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvað það þýðir að vera virkur og ábyrgur þátttakandi í lýðræðissamfélagi
hvað þurfi til að búa sjálfstætt
hvaða möguleika hann hafi til frekara náms
hvar hann leitar eftir starfi og hvaða leiðir hann hefur til að fá það starf sem hann óskar eftir
mikilvægi frístundastarfa og félagslegrar virkni
heilsusamlegu líferni
skipulagningu útskriftar
atvinnutækifærum og fyrirtækjum í nærsamfélaginu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
halda heimilisbókhald
gera áætlanir um innkaup
framkvæma þrif á heimili
leita eftir upplýsingum á netinu um opinbera þjónustu
lesa launaseðil
lesa innihaldslýsingar með tilliti til hollustu og góðrar heilsu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta möguleika sína hvað varðar nám, atvinnu, búsetu og áhugamál
skipuleggja heimilishald
nýta sér tómstunda- og félagsstörf sem henta
búa til eigin ferilskrá
njóta líðandi stundar og samveru við aðra
lifa heilbrigðu lífi
undirbúa og skipuleggja merkisviðburði eins og útskrift
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.