Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn kynnist útvist og möguleikum til gönguferða utandyra. Skipulagðar gönguferðir verða farnar í nær- og fjærumhverfi skólans. Nemandinn fær leiðsögn við að velja sér fatnað og skóbúnað sem hæfir til gönguferða
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að hægt er að nota útivist og göngu til að viðhalda eða bæta líkamsástand
að velja verður viðeigandi fatnað og skóbúnað eftir viðfangsefni hverju sinni
mikilvægi þess að setja sér markmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka hraða í göngu
ganga lengri vegalengd
auka þrek og úthald í göngu
vara sig á hættum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fara í gönguferðir, lengri eða styttri, einn eða með fjölskyldu og vinum
fara í skipulagðar gönguferðir með ferðafélagi
njóta þess að ganga
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.