Í áfanganum fær nemandinn leiðsögn við að framkvæma æfingar sem styrkja líkamann. Nemandinn kynnist teygjuæfingum, göngu, æfingum í vatni, stöðvaþjálfun o.fl.. Lögð er áhersla á að nemandinn finni æfingar við sitt hæfi, njóti þess að stunda æfingar og finni fyrir jákvæðum áhrifum á heilsu sína.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að stunda æfingar
að vellíðan getur fylgt æfingum
að hægt er að njóta æfinga
að líkaminn styrkist við að stunda æfingar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera einfaldar teygjuæfingar
ganga sér til heilsubótar
gera æfingar í stöðvaþjálfun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í æfingum sem henta eða benda á hvaða æfingar henta honum
nýta sér ýmis tilboð á sviði hreyfingar s.s. sund, gönguferðir og stöðvaþjálfun
stunda æfingar í vatni
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.