Áfanginn er tekinn á síðasta námsári. Nemandi velur sér viðfangsefni og skipuleggur í samráði við kennara sem leiðbeinir honum í gegnum áfangann. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Útfærsla verkefnanna getur verið mismunandi. Afrakstur allra lokaverkefna verður kynntur á opnu málþingi í lok annar og birtur á heimasíðu skólans. Möguleiki er að taka áfangann sem ritgerðar- eða rannsóknaráfanga í faggrein sem kennd er innan skólans
Nemandinn skal hafa lokið að minnsta kosti 140 f-einingum til stúdentspróf og VITA2VT05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu reglur um heimildanotkun og þau kerfi sem eru notuð
helstu rannsóknaraðferðum
helstu aðferðum við framsetningu og úrvinnslu gagna í tölvu
helstu aðferðum við heimildaleit
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja verkefni með ábyrgum og sjálfstæðum hætti
lesa fræðilegan texta og vinna úr honum samkvæmt viðurkenndum reglum um meðferð heimilda
tjá sig á skýran, ábyrgan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigið verkefni
taka þátt í samvinnu þegar við á
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
takast á við ný verkefni og breyta hugmynd í afurð
vera meðvitaður um eigin styrkleika og veikleika
geta kynnt verkefni sín fyrir framan aðra
sýna frumkvæði og skapandi hugsun
Notað verður leiðsagnarmat í vinnuferli verkefnis. Mat á lokaverkefni og kynningu