Hér er sögunni fylgt frá fornöld og fram til um 1800 e.Kr. Markmiðið er að nemendur fái yfirlitsgóða þekkingu á sögulegri þróun á þessu tímabili. Ennfremur verður leitast við að skoða sérstaklega einstök efnisatriði innan tímabilsins sem áhrif hafa haft á þróun vestrænnar menningar þ.m.t. íslensks samfélags. Gert er ráð fyrir að nemendur taki virkan þátt í umræðum og verkefnavinnu og kynnist þannig verklagi og hugsun sem þarf til þess að vinna með söguleg viðfangsefni.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu tímaskeiðum tímabilsins, hvað markar upphaf þeirra og endi og hvað einkennir þau
helstu hugtökum og atburðum tímabilsins sem tengjast sögu Íslands
samhengi sögulegrar þróun Íslands við aðrar þjóðir
grunnþáttum varðandi vinnu með söguleg viðfangsefni og miðlun þeirra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina og ræða söguleg viðfangsefni á skipulegan hátt
vinna með heimildir á einfaldan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina og meta orsakasamband milli sögulegra atburða og efnisatriða
tjá sig um söguleg álitamál á rökrænan hátt
vinna heildstætt verkefni sjálfstætt sem og í hóp með öðrum nemendum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.