Í áfanganum er lögð áhersla á lestur, hlustun, ritun og tjáningu. Unnið er með fjölbreytt efni með það að markmiði að efla kunnáttu í textagreiningu og efla áhuga á lestri. Lögð er áhersla á að nemandi geti skrifað mismunandi textagerðir sem hæfa viðkomandi verki og beitt mismunandi orðaforða og málsniði við hæfi. Ritun er þjálfuð, allt frá fyrstu hugmyndum til fullbúins texta. Tjáning er þjálfuð með kynningum og þátttöku í umræðum. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að viðameiri verkefnum, svo sem þematengdu efni að eigin vali o.fl., sem felur í sér öflun upplýsinga í gegnum margmiðlunarefni, á bókasafni og á netinu.
Grunnskólapróf
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi tegundum bókmenntaverka og nytjatextum
grunnhugtökum við textasmíð, ritun stuttra texta, bókmenntaritgerða og rökfærsluritgerða
orðaforða umfram það sem tíðkast í talmáli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa á góðum hraða, skilja orðaforða textanna og átta sig á innihaldi þeirra
ígrunda og greina mismunandi texta og bókmenntaverk
beita viðeigandi málsniði og blæbrigðum við ritun texta
fjalla um efni og rökstyðja eigin skoðanir
byggja upp texta á skapandi hátt
miðla á fjölbreytt hátt þekkingu sinni og skoðunum
geta aflað upplýsinga í rafrænum gögnum og prentuðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifað mismunandi tegundir texta og beitt tilheyrandi rithefðum
vinna með eigin hugarsmíð í uppbyggingu texta á persónulegan hátt
fjalla um og túlka persónur og atburðarás bókmenntaverka og rökstyðja skýringar sínar og skoðanir á þeim
greina og túlka ljóð/kvæði og rökstyðja skýringar sínar og skoðanir á þeim
geta birt þekkingu sína og skoðanir í skipulegum texta, bæði nytjatexta og bókmenntaritgerð, með viðeigandi málsniði, á réttu og blæbrigðaríku máli og rétt stafsettu
taka þátt í málefnalegum umræðum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.