Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428328506.72

    Afl- og varmafræði
    EÐLI2AV05
    25
    eðlisfræði
    Afl- og varmafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga vinna nemendur með hugtök og þekkingu úr grunnatriðum afl- og varmafræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru í náttúruvísindum. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Einingakerfi og meðferð eininga í útreikningum, mæling lengdar, tíma og massa, lýsing hreyfingar eftir beinni línu, hreyfilögmál Newtons, núningskraftar, samband vinnu og mismunandi orkuforma, varðveislulögmál orku, skriðþungi og varðveisla hans í línulegum árekstrum, þrýstingur í vökvum og lofttegundum, hiti og hreyfing efniseinda, ástandsjafna lofttegunda, varmaorka og varmaleiðni, varmarýmd, eðlisvarmi og fasaskipti. Áhersla verður lögð á að tengja verkefni við reynslu nemendanna og daglegt líf.
    A.m.k. 10 fein. í stærðfræði á 2. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einingakerfi (SI) og táknum/hugtökum afl- og varmafræði
    • helstu hugtökum á íslensku og ensku
    • tenglsum afl- og varmafræði við aðrar raungreinar, samfélag og umhverfi
    • kraftlögmálum Newtons
    • orku og varðveislu hennar
    • þrýstingi
    • hita
    • ástandsjöfnu kjörgass
    • varma, varmarýmd og fasaskiptum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota markverða tölustafi með viðeigandi einingum í útreikningum
    • setja fram og túlka gröf er lýsa hreyfingu hluta
    • nota stærðfræði við lausn verkefna/jafna
    • vinna sjálfstætt að framkvæmd verklegra æfinga og útskýra niðurstöður út frá verklýsingu/tilraunaseðli
    • beita hreyfilögmálum Newtons
    • vinna með orkuhugtakið og tengsl þess við vinnuhugtakið
    • beita gaslögmálinu
    • leysa einföld verkefni um varma og varmaskipti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja saman efnisþætti afl- og varmafræði og beita skipulegum aðferðum við úrlausn einfaldra viðfangsefna
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
    • útskýra og draga ályktanir út frá niðurstöðum verklegra æfinga
    • sýna sjálfstæði við að miðla niðurstöðum verklegra æfinga og annarra verkefna áfangans
    • skiptast á skoðunum við aðra um lausnir og útskýra hugmyndir sínar og lausnir á skilmerkilegan hátt
    • tengja afl- og varmafræði við daglegt líf, umhverfi og aðrar fræðigreinar
    • sjá notagildi eðlisfræðinnar í daglegu lífi og við tækniþróun samfélagsins
    • geta fylgst með og tekið þátt í upplýstri umræðu og mótað afstöðu til málefna er snerta vísindi, tækni og samfélag
    • vera læs á vísindafréttir sem tengjast sviði áfangans
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.