Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428328958.47

    Atóm, mól og efnahvörf
    EFNA2EE05
    26
    efnafræði
    atóm, efnasambönd og efnahvörf, frumefni
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum fyrsta áfanga í efnafræði er byrjað á því að láta nemendur vinna með hugtök og þekkingu úr grunnatriðum efnafræðinnar. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru í þessari grein. Nemendur vinna saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: hrein efni og efnablöndur, eiginleikar efna, mælistærðir og tölur, markverðir tölustafir og óvissa, uppbygging atóma, jóna og sameinda, efnatákn og helstu efnabreytingar, lotukerfið, nafnakerfi ólífrænna efna, mólhugtakið, hlutföll í efnajöfnum, helstu tegundir efnabreytinga, styrkur lausna og þynningar, rafeindaskipan atóma og jóna.
    5 einingar í stærðfræði á 2. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • meðferð og notkun talna í náttúruvísindum
    • uppbyggingu atóma, jóna og sameinda
    • efnatáknum og helstu tegundum efnabreytinga
    • mólhugtakinu
    • hlutföllum efna í efnajöfnum
    • mólstyrk efna í vatnslausn
    • rafeindaskipan atóma og jóna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla tölur og mælistærðir í efnafræði
    • nota lotukerfi og jónatöflu
    • setja upp efnajöfnu og stilla hana
    • beita mólhugtakinu og vinna með tengsl þess við hlutföll í efnajöfnum
    • skrifa rafeindaskipan atóma og nota hana til að spá fyrir um hleðslu jóna
    • nota gögn eins og lotukerfi, jónatöflur og aðrar töflur við lausn verkefna
    • meðhöndla efni og áhöld og framkvæma verklegar æfingar
    • setja fram niðurstöður verklegra æfinga
    • fylgja öryggisreglum á rannsóknarstofu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa úr efnatáknum og efnajöfnum
    • gera sér grein fyrir samspili efnafræði, stærðfræði og annarra náttúrufræðigreina
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
    • útskýra og draga ályktanir út frá niðurstöðum verklegra æfinga
    • sjá notagildi efnafræðinnar í daglegu lífi og við tækniþróun samfélagsins
    • geta fylgst með og tekið þátt í upplýstri umræðu og mótað afstöðu til málefna er snerta vísindi, tækni og samfélag
    • vera læs á vísindafréttir sem tengjast sviði áfangans
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.