Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428333989.15

    Íþróttir
    ÍÞRÓ1HL02
    75
    íþróttir
    almenn heilsu- og líkamsrækt
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Hann felur í sér markvissa fræðslu um líkams- og heilsurækt. Nemandinn kynnist fjölbreyttum aðferðum þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar. Lögð er áhersla á rétta líkamsbeitingu við æfingar að nemandi finni hreyfingu við sitt hæfi út frá getu og áhuga. Áfanginn miðar að markvissri fræðslu um forvarnagildi líkams- og heilsuræktar og hvatningu til heilbrigðari lífshátta.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • forsendum og áhrifum þjálfunar á líkama og heilsu
    • tengslum reglubundinnar líkamsræktar við heilbrigði
    • gildi upphitunar, úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
    • leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt í daglegum athöfnum
    • æfingum sem bæta líkamsstöðu og hvernig beita á líkamanum rétt
    • fjölbreytilegum aðferðum til heilsuræktar
    • mikilvægi andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar vellíðunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta honum
    • stunda æfingar og hreyfingu sem stuðla að bættri líkamsbeitingu
    • stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
    • nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru
    • nýta sér möguleika í að flétta reglubundna hreyfingu við daglegt líf og starf
    • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.