Markmið námsins er að hafa uppbyggjandi áhrif á líkamlega heilsu og andlega og félagslega líðan. Kennslan byggist á því að styrkja sjálfsmynd nemanda og auka vellíðan hans með iðkun íþrótta og útivistar. Nemendum er kennt að finna álag við hæfi. Markmiðið er að nemendur átti sig á tengslum hreyfingar við lífsgæði og læri leiðir til að rækta líkama sinn sér til heilsubótar og ánægju til æviloka.
Engar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
gildi útivistar og hreyfingar fyrir heilsu og líðan
samtengingu næringar og hreyfingar við stjórnun líkamsþyngdar
öflun og framsetningu upplýsinga af netinu og öðrum miðlum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera eigin æfingaáætlanir
nýta umhverfi sitt til líkamsræktar og útivistar
nýta tækni til greiningar á líkamlegu álagi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stunda útivist sér til heilsubótar og ánægju
skipuleggja eigin æfingaráætlun og vinna samkvæmt settum markmiðum
miðla þekkingu sinni um gildi hreyfingar og útiveru
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.