Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428352039.76

    Spænska 1
    SPÆN1UT05
    43
    spænska
    Undirstöðuatriði tungumálsins
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum byrjunaráfanga í spænsku er lögð áhersla á að nemendur nái tökum á grunnatriðum tungumálsins. Nemendur fá innsýn í útbreiðslu spænsku í heiminum og sögu tungumálsins, og læra mun á menningu og orðaforða spænskumælandi landa. Notuð verður tónlist, myndefni og efni af internetinu. Frá upphafi eru nemendur þjálfaðir í öllum málfærniþáttum: ritun og lesskilningi, hlustun og tali. Nemendur fá þjálfun í framburði, læra helstu framburðarreglur og þá bókstafi sem eru sérstakir fyrir spænska tungu. Kennd eru grunnatriði í málfræði, málnotkun, og orðaröð í spænsku. Byggður upp grunnorðaforði. Lögð verður áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, að nemendur tileinki sér árangursríka námstækni og læri að meta námsframvindu sína.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
    • nokkrum helstu grundvallarþáttum spænsks málkerfis svo sem framburði, tónfalli og einfaldri setningaskipan
    • spænskumælandi löndum og þeim menningarstraumum og siðum sem hafa áhrif á málfar þeirra þjóða sem hafa spænsku sem móðurmál
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
    • geta fylgt einföldum fyrirmælum og skilið helstu kveðjur og kurteisisávörp
    • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi hans og áhugamálum og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
    • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og athöfnum og atburðum daglegs lífs með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
    • geta skrifað stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi, fyllt út einföld eyðublöð, skrifað póstkort o.fl.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
    • skilja meginatriði einfaldra texta og greina einfaldar upplýsingar
    • taka þátt í einföldum samræðum og nota mismunandi kveðjur og samskiptaform eftir aðstæðum
    • segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni
    • rita mjög einfalda texta
    • skipuleggja nám sitt og námsaðferðir
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.