Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428352418.9

    Spænska 2
    SPÆN1HL05
    43
    spænska
    hlustun og ritun, lesskilningur, tal
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Helstu atriði fyrri áfanga eru rifjuð upp og áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu, siðum og samskiptavenjum spænskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Nemendur þjálfast m.a. í tjá sig um liðna atburði, tjá skoðun sína á einfaldan hátt, bjarga sér í verslunum og spyrja og vísa til vegar.
    5 einingar í spænsku á 1. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
    • helstu grundvallarþáttum spænska málkerfisins
    • mismunandi siðum, menningu, aðstæðum og samskiptavenjum hinna ýmsu spænskumælandi landa
    • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt, t.d. einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli, uppástungur og stuttar frásagnir
    • skilja einfalda texta af ýmsu tagi í nútíð og þátíð og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga og taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir með því að beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
    • geta tjáð sig á einfaldan hátt, sagt einfalda sögu og lýst liðnum atburðum og reynslu
    • skrifa stutta texta í nútíð og þátíð, svo sem einföld persónuleg bréf, skilaboð, boðskort, leiðarlýsingar og samtöl
    • skrifa einfaldan texta um efni sem hann þekkir og greina frá liðnum atburðum
    • nýta sér ýmis hjálpargögn í spænskunáminu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni
    • skilja meginatriði texta sem innihalda algengan orðaforða, m.a. á netinu, í blöðum og tímaritum
    • tjá sig munnlega við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
    • miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
    • skrifa einfalda texta um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu
    • bjarga sér sem ferðamaður í frönskumælandi umhverfi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.