Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428359404.97

    Þýska 3
    ÞÝSK1ÞM03
    44
    þýska
    hlustun og ritun, lesskilningur, menning og staðhættir þýskumælandi landa, tal
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Byggt er á þeirri undirstöðu sem nemandinn hefur aflað sér í undanförum. Unnið er að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Textar verða smám saman lengri og þyngri. Orðaforði er aukinn, nemendur þjálfast í nýjum málfræðiatriðum og að mestu er lokið við að fara yfir grundvallarþætti þýska málkerfisins. Frásagnir í nútíð og þátíð eru æfðar munnlega og skriflega. Samhliða annari vinnu lesa nemendur einfalda skáldsögu og leysa ýmis verkefni út frá henni. Einnig er myndefni fléttað inn í kennsluna eftir föngum. Sérstök áhersla er lögð á menningu og staðhætti þýskumælandi landa þar sem nemendur velja sér m.a. ákveðin umfjöllunarefni og kynna fyrir samnemendum. Hvatt er til aukins sjálfstæðis nemenda í vinnubrögðum og að þeir nýti sér ýmis hjálpargögn, s.s. orðabækur, málfræðibækur og netið við upplýsingaöflun.
    10 fein. í þýsku á 1. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
    • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
    • frönskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu, helstu samskiptavenjur og siði þjóðanna
    • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli, þ.m.t. formgerð og byggingu texta og vera meðvitaðri en áður um muninn á þessum málsniðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fylgja frásögn og samtölum sem tengjast efni áfangans þegar talað er skýrt og geta borið fram spurningar
    • skilja texta um almennt og sérhæfðara efni sem fjallað er um í áfanganum og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum hverju sinni
    • fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatextum
    • taka þátt í almennum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
    • segja frá á skýran hátt í nútíð og þátíð og halda stutta kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt
    • skrifa samfellda texta um ýmis efni sem hann þekkir, t.d. mannlýsingar og lýsingar á stöðum og umhverfi
    • nýta sér ýmis hjálpargögn í þýskunáminu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fylgjast með frásögnum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt
    • afla sér ýmissa upplýsinga úr mæltu máli, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í námi og starfi
    • tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi og geta dregið ályktanir af því sem hann les
    • lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
    • geta bjargað sér í málinu við flestar algengar aðstæður
    • segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
    • miðla á einfaldan hátt efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á í ræðu og riti
    • skrifa um hugðarefni sín, ýmis málefni og atburði, ímyndaða eða raunverulega, í þátíð og nútíð
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.