Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriðin í golfi. Áhersla er á tæknikennslu og að nemendur læri helstu leikreglur golfs. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að golfið sé kennt á leikrænan og skemmtilegan hátt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
leikreglum í golfi
hvernig á að leiðbeina börnum í golfi
kennslu tækniæfinga í golfi
skipulagningu golfþjálfunar fyrir yngstu iðkendurna
fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í golfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðbeina byrjendum í golfi
nota golf sem skólaíþrótt
spila golf sér til heilsubótar og ánægju
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja íþróttatíma í golfi fyrir yngstu iðkendurna
stjórna hópi af börnum við iðkun golfs
átta sig á ólíkri getu einstaklinga í hópi og finna þeim verkefni við hæfi
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá