Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428874230.9

    Fjármálalæsi
    FJÁR1FD05
    7
    fjármálalæsi
    Fjármálalæsi daglegs lífs
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að gera nemendur læsa á þá þætti fjármála sem snerta hinn almenna borgara. Þjálfuð er notkun reiknivéla og tölvuforrita sem tengjast rekstri einstaklings og heimila. Farið er í launaútreikninga, skattaskil og frádrátt, rekstur heimilis, bíls og aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sem nemendur þurfa í framtíðinni að takast á hendur. Réttindi og skyldur á vinnumarkaði verða til umfjöllunar auk þess sem nemendur verða þjálfaðir í gerð ferilskrár og starfsumsókna. Fjallað er um upplýsingaleit og skipulag gagna í tölvu, netöryggi, persónuvernd og vírusvarnir. Sérstaklega er rætt um persónuupplýsingar á netinu, t.d. hvaða persónulegu upplýsingar ber að varast að setja á netið eða upplýsa um á spjallrásum.
    Grunnskólapróf.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einföldum fjármálum daglegs lífs
    • fjármálahugtökum daglegs lífs
    • tilgangi skatts og annars frádráttar s.s. launatengd gjöld
    • rekstri heimilis og bifreiðar
    • gerð atvinnuumsókna, atvinnuleitar og gerð ferilskrár
    • helstu þáttum sem snerta kröfur, réttindi og skyldur á vinnumarkaði
    • helstu möguleikum í upplýsingatækni og þeim forritum sem tengjast fjármálum einstaklinga og rekstri heimila
    • persónuvernd, ábyrgð og varkárni í allri umgengni við tölvur og netsamskipti
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa launaseðla og önnur fjármálatengd skjöl sem varða daglegt líf einstaklings og heimila
    • reikna útborgun launa eftir skatt
    • afla sér upplýsinga og geta notað algengustu forrit til nauðsynlegra útreikninga
    • halda einfalt heimilisbókhald
    • útbúa atvinnuumsókn og ferilskrá
    • greina helstu hættur sem snúa að persónuvernd og samskiptum á netinu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja tilgang skatta og gjalda
    • skilja samhengi tekna og útgjalda
    • gera sér grein fyrir samhengi eigin fjárhags og neyslumynsturs
    • lesa í og greina fjármálatilboð sem beinast að einstaklingum og heimilum
    • setja saman ferilskrá og sækja um vinnu
    • draga ályktanir varðandi trausta notkun upplýsingatækni
    • skipuleggja varðveislu eigin gagna í tölvu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.