Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1428874711.27

    Þýska 1
    ÞÝSK1UT05
    45
    þýska
    undirstöðuatriði tungumálsins
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er byrjunaráfangi og er megináhersla lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Frá fyrstu kennslustund eru nemendur þjálfaðir í að hlusta á þýsku og að bera fram einföld orð og setningar. Mikil áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í réttum framburði og er þeim þætti sinnt bæði með hlustun og talæfingum sem og útskýringum á hljóðkerfi þýskunnar. Þá er einnig lögð mikil áhersla á skilning á mæltu máli. Einföld málfræðiatriði eru kynnt og þjálfuð jafnt og þétt eftir því sem viðfangsefni áfangans gefa tilefni til. Nemendur rita stutta texta. Þýskaland er kynnt til sögunnar ásamt öðrum frönskumælandi málsvæðum og er bætt við þá þekkingu með ítarefni, t.d. tónlist og myndefni. Einnig er fjallað lítillega um Evrópu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
    • framburðarreglum og tónfalli tungumálsins
    • þýskumælandi löndum og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
    • fylgja einföldum fyrirmælum og skilja helstu kveðjur og kurteisisávörp
    • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi hans og áhugamálum og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
    • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni og athöfnum og atburðum daglegs lífs með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
    • geta skrifað stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi, fyllt út einföld eyðublöð, skrifað póstkort o.fl.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
    • skilja meginatriði einfaldra texta og greina einfaldar upplýsingar
    • taka þátt í einföldum samræðum og nota mismunandi kveðjur og samskiptaform eftir aðstæðum
    • segja frá persónulegum högum sem og einföldum staðreyndum um kunnugleg efni
    • rita mjög einfalda texta
    • skipuleggja nám sitt og námsaðferðir
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.