Fjallað er um sjónarhorn, helstu hugtök og vinnuaðferðir greinarinnar. Skoðuð eru áhrif samfélagsins á aðstæður, hugsun og hegðun einstaklinga og hvernig þeir geta haft áhrif á umhverfi sitt. Fjallað er um þróun mannlegra samfélaga, hnattvæðingu og stöðu Íslands meðal þjóða heims og áhrif iðnvæðingar á íslenskt samfélag. Fjallað er um stjórnskipan íslensks samfélags og áhersla lögð á atvinnulíf og stjórnmál. Lögð er áhersla á að nemandinn verði fær um að taka þátt í samfélagslegum umræðum, lesa fræðilega texta um viðfangsefni áfangans og mynda sér skoðanir á grunni þekkingar og umburðarlyndis gagnvart menningu, trú og skoðunum annarra.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
algengustu hugtökum félagsvísinda
mótunaröflum einstaklinga
margbreytileika samfélaga og þróunarsögu þeirra
áhrifum iðnvæðingar á íslenskt samfélag
skipulagi íslensks samfélags og Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins
réttindum og skyldum einstaklingsins gagnvart samfélaginu
hnattvæðingu
stöðu Íslands meðal þjóða heims
högum fjölskyldunnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa félagsfræðilega texta
nota félagsfræðileg hugtök til að greina og bera saman aðstæður fólks í mismunandi samfélögum og á mismunandi tímum
íhuga og ræða eigin hugmyndir og fordóma
fjalla á gagnrýninn hátt um samfélagsleg málefni líðandi stundar í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meta upplýsingar og móta sér skoðanir á samfélagsmálum á upplýstan, gagnrýninn og umburðarlyndan hátt
taka þátt í samræðum um samfélagsmál á vitrænan hátt
ræða um samfélagsmál af þekkingu og víðsýni
deila þekkingu sinni með öðrum
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.