Í þessum byrjunaráfanga er sögunni fylgt í tímaröð frá fornöld fram til um 1800. Ýmis efni úr sögu Evrópu og Íslands valin, t.d. menningarheimur miðalda, víkingaöld og landnám Íslands, ný heimsmynd á tímum endurreisnar, vísindabyltingar, landafunda og siðaskipta um 1500. Lögð er áhersla á að nemandinn geti staðsett sig í samhengi sögunnar, sett sig í spor fólks frá ýmsum tímum og sjái tengsl við umhverfi sitt og samhengi á milli tímabila.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu tímaskeiðum mannkynssögunnar, hvað markar upphaf þeirra og endi og hvað einkennir þau
helstu hugtökum og atburðum tímabilsins með sérstakri áherslu á Íslandssögu
mismunandi menningarheimum
undirstöðuatriðum sagnfræði sem fræðigreinar og mismunandi tegundum heimilda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina meginþætti og álitamál í sögulegri framvindu
leita eftir mismunandi sjónarhornum og mynda sér skoðun á sögulegum málefnum
leita samhengis og tengsla milli tímabila
meta orsakir og afleiðingar í sögunni
tengja samtímaatburði við liðna tíma
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sjá sögu Íslands í samhengi við sögu Norðurlanda, Evrópu og heimsins
setja sjálfan sig í samhengi sögunnar og í spor fólks á ýmsum tímum
taka þátt í skoðanaskiptum og rökræðum með jafningjum um söguleg efni sem tekin eru fyrir í áfanganum
skilja gildi og afstæði sögulegrar frásagnar og skýringa
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.