Í áfanganum er farið í þá þætti jarðfræðinnar sem tengjast daglegu lífi nemenda og eðlisfræðin á bak við þá skýrð með einföldum hætti. Sérstök áhersla er lögð á jarðfræði Íslands og umhverfismál. Dæmi um umfjöllunarefni eru sólkerfið okkar, hringrásir efna á jörðinni, veðrakerfi, loftslagsmál, hafstraumar, flekarek, eldvirkni, jarðskjálftar, landmótun og nýting náttúruauðlinda. Þá verða þau vandamál sem mannkyn stendur frammi fyrir um þessar mundir varðandi nýtingu náttúruauðlinda, mengun og loftslagsbreytingar sérstaklega skoðuð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sólkerfinu okkar og þeim hringrásum sem snerta daglegt líf jarðarbúa
innri gerð jarðar, innrænum öflum og birtingarmynd þeirra á yfirborði jarðar
útrænum öflum og birtingarmynd þeirra á yfirborði jarðar umhverfismálum, orkuöflun, nýtingu náttúruauðlinda og loftslagsbreytingum
jarðfræði Íslands og þeim þáttum sem mynda og móta landið dag hvern
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita hugtökum á skilmerkilegan hátt og í rökrænu samhengi
afla sér upplýsinga um viðfangsefni jarðvísindamanna, vinna úr þeim og koma frá sér á greinargóðan máta
fjalla um umhverfismál á upplýstan og vel rökstuddan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja undirstöðuþætti jarðvísinda við umhverfi sitt og daglegt líf
gera sér grein fyrir þeim þáttum sem eru mikilvægir lífi á jörðinni og þeim ógnum sem steðja að lífríki jarðar
lesa í umhverfi sitt og draga ályktanir um þau jarðfræðilegu ferli sem þar ráða ríkjum
taka ábyrga og upplýsta afstöðu í umhverfismálum og nýtingu náttúruauðlinda
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá