Í áfanganum er leitast við að hvetja nemandann til heilbrigðari lífshátta. Lögð verður áhersla á fjölbreytta líkamsþjálfun þar sem unnið er markvisst að því að nemandi finni hreyfingu við sitt hæfi út frá getu og áhuga. Unnið er markvisst að því að nemendur öðlist færni í að skipuleggja eigin þjálfun auk þess sem farið er í grunnatriði réttrar líkamsbeitingar. Þá eru sköpuð tækifæri til að spreyta sig á fjölbreyttum aðferðum til þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar auk þess sem boðið verður upp á mælingar, t.d. á þoli og styrk, blóðþrýstingi og púlsi. Áhersla er á að nemandinn byggi ofan á grunn úr fyrri áfanga og verði meðvitaðri um þætti sem hafa áhrif á eigin heilsu.
HEIL1HH02 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi upphitunar, úthalds- styrktar- og liðleikaþjálfunar
leiðum til að nýta líkams- og heilsurækt í daglegum athöfnum
æfingum sem bæta líkamsstöðu
fjölbreyttum aðferðum til heilsuræktar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum
stunda æfingar og hreyfingu sem stuðlar að bættri líkamsbeitingu
stunda þjálfun og hreyfingu sem hefur áhrif á jákvæða upplifun og viðhorf til líkams- og heilsuræktar
nota samvinnu til að stuðla að tillitssemi og hvatningu
nota heilsulæsi til að efla og viðhalda góðri andlegri og líkamlegri heilsu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt, leikjum og útiveru
skilja gildi samvinnu í leik og keppni
sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf
glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
nýta nánasta umhverfi sitt og náttúru til heilsuræktar
nýta sér undirstöðuatriði líkamsbeitingar í þjálfun
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.