Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er almenn hreyfing. Í þessum áfanga fer hreyfingin fram í formi þrek- og þolþjálfunar með fjölbreyttum þjálfunaraðferðum. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfunina.
ÍÞRÓ1HR03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
starfsemi líkamans
áhrifum líkamsræktar á líkama og sál
ýmsum aðferðum við líkamsþjálfun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sér til heilsubótar og ánægju
beita félagsfærni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins