Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er almenn hreyfing. Í þessum áfanga fer hreyfingin fram í formi sundþjálfunar. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfunina.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
meginleikreglum í sundi
grunnatriðum í keppnisgreinum sunds
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stunda sund sér til heilsubótar og ánægju
beita félagsfærni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins