Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429005024.05

    Félagssálfræði
    SÁLF3FS05
    23
    sálfræði
    félagssálfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn fjallar um hvernig einstaklingar skynja aðra, hafa áhrif á þá og tengjast þeim. Einkum eru rannsökuð gagnkvæm áhrif hópa og einstaklinga á hver annan. Kynntar eru þekktar tilraunir í félagssálfræði. Einnig verður fjallað um aðrar grundvallarkenningar og tilraunir í sálfræði t.a.m. tengt auglýsingasálfræði, vinnusálfræði persónuleikasálfræði og afbrotasálfræði.
    FÉLV2AF03 eða ÍSLE2MG05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallarhugmyndum félagssálfræðinnar
    • víðfeðmi og hagnýtu gildi sálfræðinnar
    • leiðum sálfræðinnar til að útskýra hugsun, hegðun og tilfinningar manneskjunnar
    • mótunaröflum einstaklinga og hópa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa í og skilja umfjöllun um helstu hugmyndir félagssálfræðinnar
    • beita algengustu hugtökum á skýran hátt
    • skoða sína eigin hegðun og annarra út frá grundvallarhugtökum greinanna
    • tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
    • nota APA kerfið við skrif heimildaritgerða og verkefna
    • tjá sig skipulega og gagnrýn hátt um einstaka efnisþætti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis á sjálfan sig og aðra ...sem er metið með... verkefnum,prófum og munnlegri framsögn
    • gera sér grein fyrir samspili hegðunar, hugsunar og tilfinninga ...sem er metið með... verkefnum,prófum og munnlegri framsögn
    • geta með einföldum hætti yfirfært sálfræðilega þekkingu á eigin sjálfsmynd ...sem er metið með... verkefnum,prófum og munnlegri framsögn
    Í áfanganum verður lokapróf. Einnig verða hlutapróf á önninni. Nemendur munu vinna verkefni bæði skrifleg og munnleg.