Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Búið til:
Tue, 14 Apr 2015 15:32:48 GMT
Þematengt viðfangsefni
Unnið er með þematengd verkefni úr bókmenntum, leikritum, sögu eða menningu enskumælandi þjóða. Þemað er ákveðið eftir áhugasviði kennara.
Hafa lokið 15 einingum á 2. Þrepi eða ENSK2OR05 og ENSK2OL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu í þeim löndum þar sem tungumálið er talað
- menningu þjóða þar sem tungumálið er talað sem og eigin menningu
- inntaki textanna sem unnið er með
- orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
- hefðum sem eiga við um talað og ritað mál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilja vel sérhæfða texta á sviði sem hann þekkir
- skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram
- lesa, sér til ánægju eða upplýsingar, texta sem gerir kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð
- nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum
- tjá sig af öryggi um margvísleg málefni, bæði almenn og persónuleg
- beita ritmáli í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur þekkingu á
- skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
- átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli
- greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta, s.s. í bókmenntaverkum og öðrum textum
- leggja gagnrýnið mat á texta
- hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
- beita málinu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
Fjölbreytt námsmat.