Unnið er með þematengd verkefni úr bókmenntum, leikritum, sögu eða menningu enskumælandi þjóða. Þemað er ákveðið eftir áhugasviði kennara.
Hafa lokið 15 einingum á 2. Þrepi eða ENSK2OR05 og ENSK2OL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu í þeim löndum þar sem tungumálið er talað
menningu þjóða þar sem tungumálið er talað sem og eigin menningu
inntaki textanna sem unnið er með
orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
hefðum sem eiga við um talað og ritað mál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja vel sérhæfða texta á sviði sem hann þekkir
skilja almennt talað mál, jafnvel þar sem frásögnin er ekki sett skipulega fram
lesa, sér til ánægju eða upplýsingar, texta sem gerir kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð
nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum
tjá sig af öryggi um margvísleg málefni, bæði almenn og persónuleg
beita ritmáli í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni sem hann hefur þekkingu á
skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli
greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta, s.s. í bókmenntaverkum og öðrum textum
leggja gagnrýnið mat á texta
hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagnrýninn hátt
beita málinu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
lýsa flóknum hlutum eða ferlum á fræðisviði sem hann þekkir vel
beita rithefðum sem við eiga í textasmíð, m. a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
vinna efni úr ýmsum upplýsingaveitum og fella saman í eina heild samkvæmt þeim hefðum sem gilda um heimildavinnu
skrifa gagnorðan, skilmerkilegan og vel uppbyggðan texta
skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau vegin og metin
tjá tilfinningar, nota hugarflugið og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli