Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429091105.38

    Lokaverkefni
    VIÐS3LV05
    2
    Viðskiptagrein
    Lokaverkefni
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Unnið er viðamikið verkefni sem er eins konar lokaverkefni á Viðskipta- og hagfræðibraut sem gæti verið viðskiptáætlun, markaðsáætlun og/eða rannsókn fyrir fyrirtæki, stofnanir eða einstaklinga. Nýir markaðir verða rannsakaðir. Einnig munu nemendur fá yfirsýn yfir styrki og fjármögnunarmöguleikar fyrir frumkvöðla. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda.
    20 einingar í viðskiptagreinum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • viðskiptaumhverfinu, lögum og reglum
    • mikilvægi góðrar stjórnunar
    • markmiðasetningu og hversu mikilvægt er að setja sér markmið
    • gerð eigindlegra og megindlegra rannsókna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja sér markmið
    • nota heimildir á skipulegan hátt
    • beita áhrifaríkri stjórnun
    • taka ábyrgð og ákvarðanir
    • fá skýra framtíðarsýn
    • undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera rannsókn fyrir/um fyrirtæki, stofnanir eða einstaklinga
    • hanna rannsókn frá grunni til lokaafurðar
    • sjá samhengi námsefnis undanfarinna anna og tengingu mismunandi námsgreina
    Skila vinnuáætlun og rannsóknaráætlun. Skila verður reglulega greinargerð um framvindu verkefnisins. Skila ítarlegri lokaskýrslu.