Í áfanganum vinna nemendur mikið með hlutföll og brot. Nemendur kynnast talnamengjunum og kanna sérstaklega muninn á ræðum og óræðum tölum. Einnig kynnast nemendur óendanleika talnalínunnar með því að skoða talnabil og lausnir ýmissa ójafna með því að nota formerkjatöflur. Nemendur vinna með hlutföll í rúmfræði og kynnast hornaföllunum til þess að leysa ýmis rúmfræðileg verkefni.
Nemendur fá einnig æfingu í því að tengja saman hlutföll og vaxtareikning. Þá verður fjallað um velda og rótareglur, útvíkkun veldishugtaksins, vísisföll og lograföll.
Helstu efnisatriði eru: Náttúrulegar tölur, heiltölur, ræðar tölur, óræðar tölur, rauntölur, lokuð bil, opin bil, ójöfnur, formerkjatöflur, talnalínan, flatarmál, rúmmál, þríhyrningar, einslögun, hornafræði, hornaföll, kósínusreglan, sínusreglan, bogaföll, hornafallareglur, veldisvöxtur, veldareglur, rótareglur, ræð veldi, vísisföll, lograr og lograreglur.
A.m.k. 5 fein. í stærðfræði á 2. þrepi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
talnamengjunum og talnabilum
helstu hugtökum og táknum mengjafræðinnar
velda- og lograreglum og venslum velda, róta og logra
mikilvægi nákvæmni í mælingum
hlutföllum lengda, flatarmála og rúmmála í evklíðskri rúmfræði
horna- og bogaföllum
vísis- og lograföllum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp og leysa hvers kyns verkefni sem snúa að hlutföllum og hornaföllum
leysa ýmiskonar ójöfnur
teikna ýmis rúmfræðileg fyrirbæri eftir skriflegum leiðbeiningum
nota hornaföll til þess að finna ýmsar stærðir í þríhyrningum
nota föll til þess að lýsa ýmsum viðfangsefnum og leysa jöfnur
nota vísindalegar reiknivélar og sérhæfð stærðfræðiforrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu viðfangsefna um hlutföll og hornaföll
skilja merkingu og tengsl hugtaka sem tengjast hlutföllum og hornaföllum og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
eða með því að setja upp jöfnur
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.