Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429176496.68

    Lokaverkefni
    LEIK3LV05
    8
    leiklist
    lokaverkefni
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn byggir á sjálfstæðri vinnu nemenda. Nemendur fá kennslu í grunnþáttum verkefnastjórnunar, þeir vinna sviðsverk allt frá fyrstu hugmynd og þar til það er sýnt sem lokaverkefni annarinnar. Áhersla er á skipulagða og sjálfstæða vinnu í áfanganum sem og sýn nemenda á samfélag sitt fái að njóta sín í verkefnunum.
    LEIK3SK10
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • verkefnastjórn í leikhúsi
    • þeim ólíku þáttum sem þarf til að koma leiklistatengdu verkefni í framkvæmd
    • eigin styrkleikum og veikleikum í sjálfstæðri listsköpun í hóp
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota tæki og tól verkefnastjórnunar í samhengi við uppsetningu sviðslistaverkefnis
    • vinna að eigin listsköpun
    • starfa sjálfstætt í hóp og taka sameiginlega ábyrgð á framkvæmd og uppsetningu á verkefni
    • tjá sig gagnrýnin hátt um framkvæmd og skipulag verkefnis
    • tjá sig gagnrýnin hátt í ræðu og riti um listsköpun annarra hópa í áfanganum
    • miðla færni sinni, hugmyndum sínum og kunnáttu á uppbyggilegan og skipulagðan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka virkan þátt í samstarfi við aðra í listsköpun ...sem er metið með... verkefnum og vinnubók
    • sýna frumleika í hugsun sem nýtist í námi og starfi ...sem er metið með... lokaverkefni
    • nýta ímyndunarafl sitt til sjálfstæðrar sköpunar og temja sér leitandi vinnubrögð og áræðni í úrlausnum ...sem er metið með... framsetningu lokaverkefnis, símati og lokagreinagerð
    • leiða og taka þátt í hugmyndavinnu, sköpun og framkvæmd á listaverki ...sem er metið með... dagbók, lokaverkefni og lokagreinagerð
    • geta tjáð sig um eigin styrkleika og veikleika í listsköpun og hvað viðkomandi þarf að gera til að ná árangri ...sem er metið með... dagbók og símati
    • nýta eigið listrænt innsæi í listsköpun ...sem er metið með... lokaverkefni og símati
    • samhæfa tækni, tjáningu og sköpun í lifandi listflutningi ...sem er metið með... lokaverkefni
    • setja sér markmið, gert verkáætlanir og fylgt þeim jafnt sem einstaklingur og innan hóps ...sem er metið með... verkefnum og dagbók
    Hver nemandi heldur dagbók utan um eigin vinnu í áfanganum. Þar getur nemandi fylgst með eigin ferðalagi, þroska og hugmyndavinnu í ferlinu. Nokkur lítil verkefni í verkefnastjórnun. Hver hópur skilar greinargerð með lokaverkefni þar sem allar listrænar ákvarðanir eru rökstuddar. Lokaverkefnið sjálft er metið út frá þeim forsendum sem nemendur sjálfir hafa gefið sér í upphafi annar.