Áfanginn er bóklegur, fræðilegur og verklegur. Farið er í helstu grundvallaratriði kennslufræðinnar með það að markmiði að nemandinn læri að nýta þau til að kenna byrjendum undirstöðuatriðin í frjálsum íþróttum. Áhersla er á tæknikennslu og að nemendur tileinki sér grunntækni sem flestra greina frjálsra íþrótta og geti jafnframt miðlað þeim til barna og byrjenda í greininni. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í sem flestum greinum frjálsra íþrótta og lögð er áhersla á að hafa áfangann bæði leikrænan og skemmtilegan.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í frjálsum íþrótum
grunntækni frjálsra íþrótta
skipulagi þjálfunar fyrir börn og unglinga
leikreglum sem gilda í greinum frjálsra íþrótta
helstu þjálfunaraðferðum
mikilvægi fjölbreyttra tækni- og leikæfinga við þjálfun frjálsra íþrótta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur og getu
beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
stunda frjálsar íþróttir sér til heilsubótar og ánægju
framkvæma grunntækni sem flestra greina frjálsra íþrótta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta þjálfað yngri iðkendur og byrjendur í frjálsum íþróttum
geta útbúið tímaseðla sem hæfa getu yngri iðkenda og byrjenda í greininni
geta kennt börnum rétta grunntækni í sem flestum greinum frjálsra íþrótta
geta beitt fjölbreyttum aðferðum við þjálfun frjálsra íþrótta
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá