Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429196198.36

    Plötuvinna
    PLVG1GR05
    1
    Plötuvinna, grunnur málm- og bíliðna
    Grunnnám málm- og bíliðna
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur geta meðhöndlað og beitt helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við plötuvinnu. Áhersla er lögð á öryggismál og þá hættu sem stafað getur af tækjum og efnum sem notuð eru við vinnuna. Að námi loknu geta nemendur smíðað einfalda gripi eftir nákvæmum teikningum, bæði í vélum og með handverkfærum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu verkfærum, tækjum og vélum sem notuð eru við plötuvinnu og notkunarsviði þeirra.
    • gildandi vinnuverndarákvæðum og þeim hlífðarbúnaði sem við á þegar unnið er með vélum og handverkfærum.
    • mismunandi gerðum þunnplatna og flokkun þeirra eftir yfirborðshúð og áferð.
    • tæringarvörnum, húðun og vinnsluaðferðum.
    • áhrifum beyginga á stærð smíðisgripa úr málmplötum.
    • þeim hættum sem fylgja vinnu við þunnplötur.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita þeim handverkfærum sem notuð eru í plötuvinnu.
    • umgangast og nota þær vélar sem notaðar eru í plötuvinnu.
    • varast þær hættur sem eru samfara vinnu við handverkfæri og vélar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • velja efni eftir gefnum forsendum um gerð og þykkt.
    • ákvarða efnisstærðir og þykktir með 0,1 mm nákvæmni.
    • velja handverkfæri til vinnu einfaldra verka.
    • klippa með hand- og vélklippum 0,5-1,25 mm þykkar málmplötur með 0,5 mm nákvæmni.
    • velja beygjuklossa og stillt beygjuvélar m.t.t. efnisþykkta.
    • beygja 0,5-1,25 mm þykkar málmplötur með 1 mm nákvæmni.
    • ákvarða borstærðir fyrir hnoðun og útsnörun.
    • snara úr fyrir hnoðum og hnoða með gegnheilum hnoðum, með undirsínkuðum og kúptum haus og draghnoðum.
    • setja mismunandi smíðishluta saman með hnoðun, skrúfum og mótstöðusuðu (punktsuðu).
    • varast þær hættur sem fylgja vinnu við handverkfæri og vélar sem notuð eru við plötuvinnu.
    Áfanginn er verklegur símatsáfangi. Verkefni eru unnin og metin jafn óðum. Námsmat er því verkefnabundið leiðsagnarmat. Nemendur halda verkefnabók og prófað er úr öryggisþáttum.