Bóklegi hlutinn: Farið verður í æfingaskipulagsgerð fyrir þol og styrktarþjálfun. Nemendur eiga að gera æfingaprógramm rækt/þreksal og munu nemendur framkvæma það ca á 3ja vikna fresti.
Verklegi hlutinn: Kennslan fer að mestu fram inni í íþróttasal en einnig í ræktinni og svo þegar nær dregur vori verða kennslustundirnar einnig utandyra. Tímarnir verða fjölbreyttir þar sem farið verður í ýmsa leiki ásamt hinum ýmsu íþróttagreinum.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
æfingaáætlunargerð og þeim atriðum sem henni tengjast
áhrifum vímuefna á heilsu og líkamlegt form
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útbúa æfingaáætlun út frá markmiðum hvers og eins
framkvæma áætlunina
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp skipulagða æfingaáætlun til skemmri og lengri tíma sem gerð er út frá raunhæfu markmiði/um
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati, nemendur þurfa að standast mætingarkröfur áfangans. Öll verkefni gilda til einkunnar.