Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429395953.96

    Sköpun
    LSTR3SK05
    1
    listir
    Sköpun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn miðar að því að virkja fyrir sköpunarkraft nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á tilraunavinnu þar sem nemendur vinna í og með ólík efni og miðla. Nemendur gera tilraunir með margvíslegan óhefðbundinn efnivið þar sem þeir leitast við að finna óvæntar og skapandi leiðir til úrlausnar. Í áfanganum eiga nemendur að sýnt frumkvæði og skapandi nálgun í verkefnum sínum og beita viðeigandi aðferðum við útfærslu verka sinna. Kennslan er einstaklingsbundin og miðar að því að styðja nemendur til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni og þróa úrlausnir við hæfi.
    A.m.k. 5 einingar í eigin listgrein á 2. þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • möguleikum lista til verðmætasköpunar
    • mismunandi miðlum sem hægt er að nota í listsköpun
    • konsept hugsun
    • vinnuumhverfi, vinnutækjum og áhöldum við hæfi
    • skapandi hugsun og hugflæði
    • hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar
    • fjölbreyttum miðlum sem hægt er að nýta við listsköpun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita skapandi hugsun
    • nýta mismunandi miðla við listsköpun
    • tjá sig um eigin sköpun
    • nýta sér hugarflæði í hugmyndavinnu
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar og bregðast við viðmælendum
    • beita mismunandi miðlunarleiðum í sköpun sinni og rökstyðja val sitt
    • að tjá sig um eigin listsköpun og sýna hana
    • að meta eigið vinnuframlag
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vera skapandi í hugsun
    • skapa verk byggt á eigin listrænum styrk
    • skilgreina eigin verk
    • vera meðvitaður um menningarlegt hlutverk listsköpunar
    • fullvinna hugmyndir
    • kynna eigin verk og geta brugðist við og tjáð skoðanir sínar um verk annara
    • tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum um myndlist við ólíka viðmælendur
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • standa að sýningu þar sem nemandinn miðlar verkum sínum
    • þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum
    • meta eigið vinnuframlag
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.