Áfangin fjallar um spurninguna um tíma í myndlist, hvernig hann birtist í listaverkum og hvernig listamenn nálgast hugtakið í sköpun sinni. Í áfanganum munum við leggja áherslu á ólíkar nálganir listamanna með hugtakið tími og hvernig tíminn sýnir sig í listaverki annaðhvort sem efniviður, vandamál, þema og/eða innblástur. Við skoðum hvernig listamenn hafa nálgast þetta í verkum sínum í stuttum fyrirlestrum sem veita nemendum innblástur fyrir eigin verk sem eiga að fjalla á einhvern hátt um tíma. Í lok áfangans skila nemendur og sýna fullbúið verk þar sem unnið er með tíma þemað á skapandi hátt í hvaða miðli sem er.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökum tengdum tíma í listsköpun
ólíkum nálgunum þekktra listamanna
mismunandi listmiðlum
mismunandi tegundum hreyfimynda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig á skýran, ábyrgan og skapandi hátt um sköpun sína
skipuleggja vinnuferli við undirbúning verks eftir eigin hugmyndum undir leiðsögn kennara
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
taka þátt í umræðum um listsköpun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá skoðanir sínar á hugtakinu tími í myndlist
skapa skýra sjálfsmynd og gerir sér grein fyrir nýjum tækifærum
búa til eigið verk
geta metið eigin þekkingu og leikni ásamt því aða gera sér grein fyrir hvernig frekara nám eflir hæfni og eykur möguleika
vinna á skapandi hátt við listiðkun sína
vera virkur og ábyrgur borgari í lýðræðislegu samfélagi og innan samfélags greinarinnar og listarinnar
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati, nemendur þurfa að standast mætingarkröfur áfangans.