Nemendur kynnast hekli og helstu heklaðferðum. Nemendur læra meðal annars loftlykkjur, keðjulykkjur, fastalykkjur/pinna, stuðla og tvöfalda stuðla, að hekla fram og tilbaka og í hring.
Nemendur vinna prufur með mismunandi heklaðferðum og ömmudúllu. Þeir læra að lesa úr mynstrum og fylgja einföldum hekluppskriftum og svo vinna þeir að verkefni að eigin vali, annaðhvort eftir uppskrift eða eigin hönnun. Meginmarkmið áfangans er að nemendur verði sjálfbjarga að honum loknum og geti heklað áfram sjálfir.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu heklaðferðum og möguleikum þeirra
mismunandi heklgarni, áferð og eiginleikum
helstu heklverkfærum
heklheimi alheimsvefsins
möguleikum hekls í hönnun og listum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita mismunandi heklaðferðum
fylgja einföldum hekluppskriftum
lesa úr mynstrum
hekla fram og til baka
hekla í hring
leita að uppskriftum á netinu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita helstu heklaðferðum og sjá möguleikana í þeim
finna þær uppskriftir sem hann hefur áhuga á að vinna eftir
velja sér garn og heklunálar eftir hentugleika
kynna sér verk fagmanna og möguleikum hekls í hönnun og listum
hekla sjálfstætt eftir einföldum uppskriftum og mynstrum og sé fær um að halda áfram að bæta við sig kunnáttu að áfanganum loknum
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati, nemendur þurfa að standast mætingarkröfur áfangans.