Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429449018.41

    Tölvuviðgerðir
    TÖLV1TV02
    4
    tölvur
    Tölvuviðgerðir
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Þetta námskeið er fyrir þá sem vilja kynna sér hlutverk og starf þess er starfar við tölvuviðgerðir og fá upplýsingar um hvað felst í starfi kerfisstjóra. Eftir námskeiðið eiga nemendur að geta gert sér grein fyrir hvernig tölvur og tölvukerfi eru uppfærð, bilanagreind og hvernig unnið er að viðgerðum á tölvubúnaði. Einnig á nemandinn að fá innsýn í hvernig Windows-stýrikerfi er sett upp og hlutverk netkerfa. Farið verður í heimsókn til fyrirtækja í tölvugeiranum. Að loknum áfanganum eiga nemendur að vera færir um að verða sér úti um frekari þekkingu upp á eigin spýtur. Nemendur eru hvattir til að koma með sínar eigin borðtölvur til yfirferðar og hreinsunar.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • virkni vélbúnaðar, td. móðurborði, örgjörva, aflgjafa, harðra diska og skjákorta
    • uppsetningu og viðhaldi á Windows-stýrikerfi
    • bilanagreiningu í stýrikerfi, bilanagreiningu vélbúnaðar og lausn vandamála
    • BIOS, CMOS og reklar
    • jaðartækjum, s.s. skjáum og prenturum
    • netkerfum, þar á meðal netbúnaði, stöðlum og Windows domain
    • hugbúnaði og vefsíðum sem gott er að þekkja
    • öryggismálum og vönduðum vinnubrögðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja vélbúnað, td. móðurborð, örgjörva, aflgjafa, harða diska og skjákort
    • setja upp og viðhalda Windows-stýrikerfi
    • beita bilanagreiningu, finna lausn vandamála og vinna að viðgerðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja vélbúnaðinn sem hann hefur fyrir framan sig
    • setja upp og viðhalda Windows-stýrikerfi
    • skilja hvernig tölvur og tölvukerfi eru uppfærð og bilanagreind
    • skilja hvernig unnið er að viðgerðum á tölvubúnaði
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati, nemendur þurfa að standast mætingarkröfur áfangans.