Viðfangsefni áfangans er körfuknattleikur og áfanginn er að mestu verklegur þar sem áherslan er körfuknattleik fyrir byrjendur upp að 16 ára aldri.
Í áfanganum verður farið í grunnatriði greinarinnar og nemendur þjálfa ýmis grunntækniatriði s.s. knattrak, sendingar, sniðskot og stökkskot. Efni tengt viðfangsefninu verður sett á kennsluvef og nemendur vinna fjölbreytt verkefni, bæði verkleg og bókleg, ýmist einir eða í hóp undir leiðsögn kennara.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu þjálfunaraðferðum greinarinnar
grunnatriðum og reglum greinarinnar
mismunandi hlutverkum leikmanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stunda körfuknattleik, spila mismunandi stöður og fylgja leikreglunum
framkvæma upphitun og aðrar æfingar til að bæta getu sína í greininni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
spila körfuknattleik eftir leikreglum
geta horft á körfuknattleik og skilið leikinn
geta tekið þátt í umræðum um körfuknattleik
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.