Nemendur velja sér verkefni í samráði við kennara, nemendur þurfa að rökstyðja val sitt á verkefni og safna saman efni meðan á vinnunni stendur til að geta skrifað skýrslu um vinnuna. Í lokin þurfa nemendur að kynna verkefnið með einhverjum hætti, t.d. með fyrirlestri og kynningarefni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
viðfangsefninu sem hann velur sér
því hvernig best er að safna saman upplýsingum sem hafa með viðfangsefnið að gera
mikilvægi skýrslugerðar í verkefnavinnu
því hvernig best er að rökstyðja val sitt á verkefni og kynna það fyrir öðrum
hvernig skal byggja upp og setja fram áheyrilegan fyrirlestur
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
safna saman upplýsingum og vinna úr þeim
skrifa skýrslu um vinnuferlið
rökstyðja val sitt á verkefni og kynna það fyrir öðrum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa skýrslu um vinnuferlið frá upphafi til enda
setja saman fyrirlestur og kynningarefni um verkefnið frá byrjun til enda
tjá sig um verkefnið og miðla þekkingu, hugmyndum og skoðunum og bregðast við gagnrýni áheyrenda
meta eigin vinnuframlag
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.