Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429459908.81

    Listamenn og listastefnur
    LSTR1MS02
    17
    listir
    Listamenn og listastefnur
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Nemendur kynna sér valda listamenn eða listastefnur undir leiðsögn kennara. Þeir heimsækja listamenn og/eða listasöfn til að safna upplýsingum fyrir verkefnið.
    Inngangur að listum
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi listastefnum og listamönnum
    • hvar best sé að leita upplýsinga um listastefnur og/eða listamenn
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja ákveðnar listastefnur
    • bera kennsl á verk ákveðinna listamanna
    • leita sér upplýsinga sem koma að gagni við vinnuna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • kynna sér listamann og/eða listastefnu með því að safna upplýsingum og fara í vettvangsferðir og/eða heimsóknir
    • kynna verkefnið sitt fyrir öðrum
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar og þess vegna er það mikilvægt að nemendur stundi námið reglulega.