Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429518032.92

    Bylgjur og varmafræði
    EÐLI2BV05
    34
    eðlisfræði
    bylgjur, varmafræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með hugtök og þekkingu úr afl, bylgju og varmafræði. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við nám í þessari grein. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og saman í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.
    EÐLI2GÁ05 og STÆR3HV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum sem notuð eru til að lýsa hringhreyfingu og þyngdarsviði, skriðþunga og vökvum.
    • þyngdarlögmáli Newtons, lögmálum Keplers, lögmálinu um varðveislu skriðþunga, atlagslögmálinu, lögmálum Pascals og Arkimedesar og jöfnu Bernoullis.
    • gasjöfnunni og kjörgasi.
    • sveiflum, bylgjum og hljóði sérstaklega og ljósgeislafræði.
    • viðlagningarlögmálinu, endurvarpslögmálinu og lögmáli Snells.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum.
    • beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi.
    • leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða frá gefnum forsendum.
    • vinna með fjölmæla og ýmsa rafhluti við að framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra, m.a. með tölvuforritum.
    • setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum.
    • nota námsefni og gögn á markvissan hátt.
    • yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið.
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar.
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar.
    Verkefni og próf.