Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429564594.93

    Heimildaritun
    ÍSLE3HE05
    96
    íslenska
    Heimildaritun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í vinnubrögðum sem tengjast heimildavinnu. Ritun: Vinna fjölbreytt og krefjandi ritunarverkefni. Lestur: Lesa margs konar greinar og bækur sem nýtast við heimildavinnuna ásamt ýmsum sýnidæmum. Málnotkun: Tileinka sér málfar sem hæfir efninu. Framsögn: Taka þátt í umræðum í tímum, kynna og verja lokaverkefni.
    10 einingar á 2.þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum sem tengjast heimildavinnu, s.s. beinni og óbeinni tilvitnun, tilvísun og heimildaskrá
    • muninum á talmáli og ritmáli
    • hvaða málsnið hæfir mismunandi efni og aðstæðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita gagnrýninni hugsun við úrvinnslu heimilda
    • velja stílbrögð sem hæfa efninu
    • velja og nýta á gagnrýninn hátt þær upplýsingar sem skipta máli í heimildaritun
    • vega og meta áreiðanleika heimilda
    • flytja af öryggi og sannfæringarkrafti eigið efni
    • meta mismunandi sjónarmið og taka sjálfstæða, rökstudda afstöðu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa skýran, vel upp byggðan og grípandi texta
    • velja viðeigandi ritstíl eftir viðtakendum og aðstæðum
    • tjá rökstudda afstöðu, útskýra sjónarmið og taka virkan þátt í málefnalegum umræðum
    • draga saman aðalatriði úr heimildum þannig að rétt sé með farið í hvívetna
    • beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
    • forðast ritstuld
    Verkefni nemenda verða metin, svo sem framsögn, ritstjórnarvinna og ritun. Stutt próf úr hugtökum. Jafningjamat á nokkrum verkefnum.