Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1429565872.15

    Kvennabókmenntir
    ÍSLE3KO05
    97
    íslenska
    Kvennabókmenntir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er skyggnst inn í sögu kvennabókmennta. Lesnar eru skáldsögur, smásögur og ljóð eftir konur.
    Tveir áfangar á 2. þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • inntaki og einkennum þeirra verka sem lesin eru
    • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
    • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
    • mismunandi tegundum bókmennta sem konur hafa skrifað
    • helstu bókmenntahugtökum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og vandaðan hátt í blæbrigðaríku máli
    • ganga frá texta til birtingar
    • nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra
    • skilja og nota viðeigandi stílbrögð og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
    • nýta eigin sköpunargáfu
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
    • skilgreina lykilhugtök
    • greina mismunandi sjónarmið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • túlka og bera saman bókmenntaverk og setja þau í sögulegt samhengi
    • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta
    • velja ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
    • leggja mat á og efla eigin málfærni
    • tjá rökstudda afstöðu og geta tekið virkan þátt í umræðum
    • beita gagnrýninni hugsun við lesturinn
    • greina dulinn boðskap og hugmyndir
    • átta sig á samfélagslegum skírskotunum
    • sýna siðferðisvitund og víðsýni í málflutningi
    Símat/leiðsagnarmat þar sem byggt er á fjölbreyttu námsmati.