Kennt er hvernig á að standa að stofnun fyrirtækis. Lögð er sérstök áhersla á að nemendur, upp á eigin spýtur, skipuleggi fyrirtæki, hanni vöru eða þjónustu og skipuleggi sölu á henni. Nemendur fá jafnframt að kynnast uppbyggingu og skipulagi fyrirtækja og stofnana og hvernig þau ná best markmiðum sínum. Meðal annars er farið yfir markmiðssetningu og vinnu- og framleiðsluferli.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
markaðssetningu
framleiðsluferli
starfsmannamálum
stjórnun fyrirtækis
rekstri fyrirtækis
fjármálum fyrirtækis
einföldum efnahagsreikningi
einföldum rekstrarreikningi
einföldum arðsemisútreikningum
helstu rekstrarformum fyrirtækja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útbúa vöru út frá vöruhugmynd
gera markaðsáætlun - auglýsinga- og kynningaráætlun
gera markaðskönnun
stofna fyrirtæki
reka fyrirtæki
vinna saman í hóp
vinna innan tímaramma
gera einfalda viðskiptaáætlun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stofna fyrirtæki eftir skóla
undirbúa og framkvæma krefjandi verkefni
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá