Í áfanganum lærir nemandinn að hanna og sauma fóðraða utanyfirflík. Hann kynnist sníðagerð og saumi á ýmsum saumtækniatriðum t.d. krögum og ýmsum gerðum af vösum. Nemandinn þjálfast í útreikningi á efnismagni og skipulagi við að leggja snið á efni. Lögð er áhersla á teikningu grunnsniða og þau notuð til að vinna flóknari sniðútfærslur í einum fjórða mælikvarða til yfirfærslu í raunstærðir. Lögð er áhersla á skipulagt vinnuferli og þjálfun í mátun sniða með saumi á prufuflíkum og leiðréttingu sniða eftir mátun. Mikilvægt er að nemandinn öðlist færni í að vinna og þróa eigin hugmyndir í fatagerð. Mikilvægt er að nemandinn þroski með sér tilfinningu fyrir formi og litum.
HÖTE2FA06, HÖTE2HU05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig fóðra á flík
nokkrum algengum saumtækniatriðum s.s kraga og vasa
hvaða hráefni henta í utanyfirflíkur
notkun flísilíns í flíkum
uppbyggingu grunnsniðs af jakka með tilheyrandi viðbótarvídd
hvernig reikna skal út efnismagn samkvæmt sniðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skissa hugmyndir, teikna tískuteikningar og flatar vinnuteikningar
útfæra snið eftir eigin teikningum í smærri mælikvarða og yfirfæra í raunstærð
framkvæma sniðútfærslur á grunnsniði fyrir jakka
teikna snið af fóðraðri flík
sníða og sauma fóður inn í flík
nota flísilín á réttan hátt
reikna út efnismagn fyrir flík
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
afla upplýsinga í tenglsum við hugmyndavinnu og vinnuskýrslu
gera snið af fóðraðri utanyfirflík
gera saumtækniprufur af vösum og krögum
vinna snið í efni og sauma fóðraða utanyfirflík á skipulagðan og vandaðan hátt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.