Í áfanganum er fjallað um færniþætti matvælagreina í bóklegri kennslu. Nemandinn kynnist straumum og stefnum í matvælagreinum og vinnsluaðferðum í hverri grein. Hann kynnist siðum og venjum og þeim kröfum sem gerðar eru um rétt vinnubrögð í matvælagreinum. Nemandinn fær kennslu í því að fylgja leiðbeiningum, t.d. uppskriftum o.fl. er tengjast störfum í matvælagreinum, svo og faglegum vinnubrögðum. Fjallað er um innra eftirlit, HACCP og nemandinn upplýstur um mikilvægi hreinlætis á vinnusvæði og búnaði m.a. til að koma í veg fyrir matarsjúkdóma. Einnig er farið yfir ábyrgð matvælaframleiðenda í því samhengi. Kynntar eru gildandi öryggisreglur um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum. Nemandinn lærir að gera hreinlætisáætlanir og er þjálfaður í að fylgja þeim eftir, ásamt því að kunna skil á helstu hreinsi- og sótthreinsiefnum. Lögð er áhersla á að glæða áhuga nemanda á náminu, efla sjálfstæði hans og sjálfstraust.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi starfa í matvælagreinum og þýðingu þeirra fyrir samfélagið
þeim færniþáttum sem viðhafðir eru við mismunandi störf í matvælagreinum
faglega réttum vinnubrögðum og mikilvægi þeirra við störf í matvælagreinum
hreinsiáætlunum HACCP
eiginleikum helstu ræstiefna og notkun þeirra
mikilvægi hreinlætis og þrifnaðar í matvælaframleiðslu
ábyrgð starfsfólks í matvæla- og veitingagreinum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna í matvælagreinum eftir fyrirfram ákveðnum verkferlum á faglegan hátt
vinna eftir uppskrift og fylgja leiðbeiningum
viðhafa gott persónulegt hreinlæti
þrífa tæki, áhöld og umhverfi samkvæmt reglum um þrif í matvælafyrirtækjum
nota algengustu ræsti- og sótthreinsiefni með tilliti til efnafræðilegrar uppbyggingar og umhverfisverndar
gera hreinlætisáætlanir og vinna samkvæmt þeim
fylgja fyrirmælum, uppskriftum og fleiri leiðbeiningum á réttan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
takast á við mismunandi störf í matvælagreinum og vinna við þau undir handleiðslu iðnmeistara eða tilsjónarmanns
fylgja viðurkenndum starfsaðferðum sem notaðar eru við störf í matvælagreinum
vinna skv. uppskriftum og leiðbeiningum frá viðkomandi yfirmanni/starfsmanni hverju sinni
vinna með hreinlætisáætlanir skv. gæðakerfi HACCP
ganga af öryggi um vinnusvæði með tilliti til hreinlætiskrafna út frá öryggi viðskiptavinarins
nýta fyrirbyggjandi aðferðir til að forðast matarsýkingar við störf sín
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.