Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1430317078.15

    Stærðfræði: Fyrri hluti fornáms í stærðfræði
    STÆR1BA05(FB)
    54
    stærðfræði
    Talnameðferð, frádráttur, margfeldi og deiling talna. Brotareikningur., samlagning
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    FB
    Talnameðferð, samlagning, frádráttur, margfeldi og deiling talna. Brotareikningur. Áhersla á að læra ákveðin grunnatriði til hlítar og byggja þannig upp sjálfstraust nemenda.
    Nemendur sem fá einkunnina 5 eða lægri lokaeinkunn í grunnskóla og talið er að þurfi tvær annir til að byggja upp viðunandi grunn fyrir STÆR1AU05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnatriðum táknmáls stærðfræðinnar
    • heilum tölum
    • röð aðgerða
    • almennum brotum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa þann hluta táknmáls stærðfræðinnar sem tengist efni þessa áfanga
    • meðhöndla heilar tölur, jákvæðar og neikvæðar, leggja saman, draga frá, margfalda og deila
    • forgangsraða reikniaðgerðum
    • meðhöndla almenn brot, jákvæð og neikvæð, leggja saman, draga frá, margfalda og deila
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • lesa einfaldan stærðfræðitexta
    • sýna útreikninga og skrá lausnir sínar skilmerkilega
    • geta unnið eftir fyrirmælum
    • láta skýringar fylgja með útreikningum
    • vanda alla framsetningu og sér í lagi að gæta að réttri notkun stærðfræðitákna
    Vetrareinkunn og lokapróf. Vetrareinkunn byggir á vikulegu mati alla önnina með verkefnum og prófum. Nemendur endurvinna öll verkefni og próf þar til þeir hafa náð tökum á viðkomandi efnisþáttum og fá þá vinnu metna. Lokapróf spannar alla helstu efnisþætti áfangans og tekur mið af þekkingar-, leikni- og hæfniviðmiðum hans.