Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1430385535.59

    Saga íþróttanna
    ÍÞRF2ÍS03
    10
    íþróttafræði
    kynjamunur, íþróttasaga, þróun íþrótta
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    AV
    Í áfanganum er farið yfir helstu atriði í íslenskri íþróttasögu ásamt helstu þáttum í erlendri íþróttasögu s.s. Ólympíuleika. Fjallað er um gildi og hlutverk íþrótta í nútíma samfélagi. Komið er inn á félagslegar rannsóknir á sviði íþrótta á Íslandi, áhrif fjölmiðla á þróun íþrótta, kynjamun og íþróttaiðkun, ásamt tengingu fjármagns og auglýsinga við íþróttir. Fjallað er um stefnur í íþróttum, s.s. afreksmannastefnu íþróttahreyfingarinnar og afreksmannasjóð. Vikið er að skipulagningu íþróttahreyfingarinnar og uppbyggingu hérlendis og hvernig við tengjumst heimssamtökunum. Farið er yfir árangur íslendinga á Ólympíuleikum, íþróttir mismunandi hópa, íþróttir sem heilsueflingu, gildi íþrótta, forvarnir, áhrifamátt og tengsl fjölmiðla og fjármagns við íþróttir. Einnig eru íþróttir skoðaðar út frá áhrifum á samfélag nemanda.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögu íþrótta á Íslandi fyrr og nú
    • glímu, sem þjóðaríþrótt Íslendinga
    • helstu atriðum í sögu Ólympíuleika
    • félagslegum rannsóknum á sviði íþrótta á Íslandi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skoða áhrif íþrótta á samfélagið
    • þekkja uppbyggingu og skipulag íþróttahreyfingarinnar á Íslandi
    • læra um áhrifamátt og tengsl fjölmiðla og fjármagns við íþróttir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja gildi íþrótta sem forvarnarstarfs
    • skilja samfélagslegt gildi íþrótta fyrr og nú
    • skilja gildi íþrótta sem söluvöru
    • taka þátt í umræðum um íþróttir í samfélaginu í víðum skilningi
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.