Í áfanganum er fjallað um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað er um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Einnig um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað er um starfsemi einstaka vöðva, upptök þeirra og festu. Fjallað er um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Áfanginn byggir að stórum hluta á stafrænni hreyfifræði, þ.e. hvernig vöðvar, bein og liðamót líkamans koma við sögu í fjölbreyttum hreyfingum. Nemandinn gerir æfingar með og án áhalda til að auka skilning sinn á því hvernig ákveðnar hreyfingar myndast í íþróttum. Enn fremur er fjallað um rétta lyftitækni, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu. Lögð er áhersla á að nemandinn verði meðvitaður um eigin líkamsbeitingu við vinnu og/eða íþróttaiðkun og öðlist aukinn skilning á eigin líkamsstarfsemi með það að markmiði að auðvelda honum að taka ábyrgð á eigin lífsháttum.
ÍÞRF2ÞB03 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni helstu vöðva og vöðvahópa líkamans, upptökum þeirra og festu
hlutverki beinagrindar, heitum beina og staðsetningu
hreyfingu og gerð helstu liðamóta og banda
helstu lögmálum hreyfifræðinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina hreyfingar með tilliti til virkni einstakra vöðvahópa
greina hreyfingar með tilliti til virkni liðamóta
beita réttri lyftitækni
nota réttar starfsstellingar og hreyfingar við vinnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna með helstu lögmál hreyfifræðinnar
greina staðsetningu og heiti helstu beina, vöðva og liðamóta líkamans
greina vöðvavinnu við ákveðnar æfingar og leiðbeina út frá því
greina mun á réttri og rangri líkamsbeitinu og geta veitt ráðleggingar um líkamsbeitingu
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.