aðstoð við þjálfun eldri barna, æfingaáætlun, íþróttakennsla
Samþykkt af skóla
3
3
AV
Áfanganum er ætlað að kynna nemandanum þjálfun barna á aldrinum 10-15 ára. Nemandinn skipuleggur og sér um æfingar/hreyfingu hjá grunnskólabörnum á þessum aldri undir handleiðslu kennara. Nemendur vinna saman í litlum hópum, heimsækja grunnskólana og eru með kennslu þar. Farið er en frekar yfir hlutverk íþróttaþjálfara sem fyrirmynd barna og unglinga og hvernig skuli leiðbeina börnum og unglingum varðandi tækniatriði ýmissa íþróttagreina. Nemandinn nýtir sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn tileinki sér jákvæð og uppbyggileg samskipti við æfingahópa sína.
ÍÞSN3ÍY03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
kennslu og þjálfun barna og unglinga á aldrinum 10-15 ára
helstu forsendum áætlanagerðar í íþróttum
hlutverki íþróttaþjálfara sem fyrirmynd barna og unglinga
helstu reglum þeirra greina sem kenndar eru
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðbeina börnum og unglingum í tækniatriðum ýmissa íþróttagreina
kynna nýja leiki og æfingar fyrir æfingahóp barna og unglinga
hafa jákvæð og örvandi samskipti við æfingahópa sína
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
kenna börnum og unglingum ýmsa leiki og grunnæfingar í íþróttum
halda uppi góðum aga og virkni í sínum æfingahópi
nýta sér upplýsingatækni við skipulagningu þjálfunar sinna æfingahópa í samráði við íþróttakennara/þjálfara
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.