Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í körfuknattleik. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemandinn öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.
ÍÞRG2ÞS03 eða sambærilegur áfangi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
leikreglum í körfuknattleik
skipulagningu körfuknattleiksþjálfunar
kennslu tækniæfinga í körfuknattleik
hvernig á að leiðbeina börnum í körfuknattleik
fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í körfuknattleik
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðbeina byrjendum í körfuknattleik
greina getu ólíkra einstaklinga í hóp
nota körfuknattleik sem skólaíþrótt
spila körfuknattleik
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja íþróttatíma í körfuknattleik
stjórna hópi af börnum í körfuknattleiksþjálfun
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.