Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1430928192.07

    Menning og skapandi skrif
    ENSK2MS05
    74
    enska
    menning, skapandi skrif
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga munu nemendur kynna sér menningu í enskumælandi löndum í gegnum samtímabókmenntir. Lögð er áhersla á að nemendur tjái sig munnlega og skriflega og beiti málinu af nákvæmni. Nemendur skrifi ýmiss konar efni frá eigin brjósti.
    ENSK1UB05 eða 7,0 eða hærra á grunnskólaprófi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu menningarsvæðum þar sem enskan er móðurmál eða fyrsta mál
    • ólíkum viðhorfum og gildum, hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem málið er notað og geti tengt þau eigin samfélagi og menningu
    • þverfaglegum orðaforða
    • helstu hefðum í uppsetningu og skipulagi ritaðs máls
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja mál sem talað er með mismunandi hreim eða við ólíkar aðstæður, sem og skilja algengustu orðasambönd sem eru einkennandi fyrir talað mál
    • tjá sig skýrt og hnökralaust um málefni sem nemandinn hefur kynnt sér
    • lesa margs konar gerðir texta og beita viðeigandi lestraraðferðum
    • skrifa margs konar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, rökræðna og fræðilegra fyrirlestra, ...sem er metið með... verkefnum
    • skrifa texta frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín, ...sem er metið með... verkefnum
    • skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig, ...sem er metið með... verkefnum
    • taka þátt í skoðanaskiptum, eiga frumkvæði í samræðum og bregðast við óvæntum spurningum og athugasemdum, ...sem er metið með... verkefnum og munnlegri framsögn
    Símatsáfangi. Námsmat byggist að mestu leyti á vinnu nemenda yfir önnina. Lokapróf er ekki í áfanganum.